Almennar fréttir / 20. mars 2015

Tilkynning um undirritun Regins hf. á kaupsamningi í tengslum við Samkomulag um kaup á fasteignasafni í eigu Fastengis ehf.

Í tilkynningu Regins hf. þann 17. febrúar síðastliðinn kom fram að undirritað hefði verið samkomulag um kaup á fasteignasafni í eigu Fastengis ehf.

Í dag var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og Fastengis ehf. á grunni ofangreinds samkomulags. Með kaupsamningi þessum kaupir Reginn hf. allt hlutafé í Fjárvara ehf., Bréfabæ ehf. og Sævarhöfða 2 ehf. Félögin þrjú eru eigendur þess fasteignasafns sem samkomulag frá 17. febrúar sl. náði til.

Kaupverð undirliggjandi fasteigna, eðli og umfang viðskiptanna sem og metin áhrif á Reginn hf. er í samræmi við fyrri tilkynningar og kynningar Regins hf.  Vísað er til tilkynningar frá 17. febrúar sl. og kynningar er haldin var í tengslum við birtingu Regins hf. á ársreikningi þann 25. febrúar sl. og má finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestar.

Stjórnir félaganna hafa samþykkt kaupin.

Vakin er athygli á að kaupsamningurinn er enn með fyrirvara um fjármögnun kaupanna, niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Gengið hefur verið frá samkomulagi við ráðgjafa vegna vinnu áreiðanleikakannana þ.e., LEX lögmannsstofu um lagalega þætti, KPMG ehf. vegna skattalegrar- og fjárhagslegrar þátta og VSÓ Ráðgjöf vegna tæknilega atriða.

Áætlað er að afhending félaganna fari fram eftir mitt ár 2015.

Tilkynning um samkomulag 17. febrúar sl.:

https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=650814&lang=is

Kynning Regins hf. við birtingu ársreiknings 25 febrúar sl.:

http://www.reginn.is/media/annad/Kynning-Arsuppgjor-2014-25022015-loka.pdf

Reginn hf. Tilkynning um undirritun Regins hf. á kaupsamningi í tengslum við Samkomulag um kkaup á fasteignasafni í eigu Fastengis ehf.



Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.