Græn fjármögnun

Reginn hefur einsett sér að vera leiðandi í mótun og rekstri fasteigna auk þess að stuðla að velferð samfélags, bættum lífsgæðum og umhverfi íbúa. Rekstur og skipulag fasteigna hefur umtalsverð áhrif á umhverfi og lífsgæði íbúa en tugir þúsunda manna dvelja daglega í fasteignum Regins, ýmist við leik eða störf. Með markvissum aðgerðum í rekstri fasteigna, fjárfestingum, skipulagi, nýbyggingum og með samvinnu við leigutaka getur Reginn átt ríkan þátt í að móta umhverfi fólks þannig að daglegt líf verði betra, ánægjulegra og öruggara.

Með stöðugar úrbætur að leiðarljósi hefur félagið sett sér skýr, mælanleg, markmið um sjálfbærni. Árangur á því sviði er mældur með markvissum hætti og starfsmenn, viðskiptavinir og fjárfestar upplýstir um markmiðin og þann árangur sem næst. Í fjárfestingum og rekstri fasteigna er horft til langs tíma. Það er trú félagsins að áhersla á sjálfbærni dragi úr áhættu í rekstri félagsins og styrki fjárhagslega arðsemi til lengri tíma litið.

Reginn birti fyrst íslenskra fasteignafélaga umgjörð um græna fjármögnun í mars 2020 en umgjörðin var uppfærð í mars 2023 þar sem markmið varðandi m.a. losun gróðurhústegunda var uppfærð í takt við góðan árangur árin á undan. Umgjörðin fékk óháð álit CICERO, miðstöðvar alþjóðlegra loftslags- og umhverfisrannsókna fyrst í mars 2020 og svo aftur í mars 2023.

Græna umgjörðin byggir á svokölluðum „Green Bond Principles“ viðmiðum útgefnum af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði