Þann 22. ágúst hlaut Reginn viðurkenningu vegna góðra stjórnarhátta og nafnbótin „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“. Sunna H. Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni, fasteignareksturs og reksturs í fasteignum tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd Regins.
Viðurkenningin byggir á úttekt á stjórnarháttum félagsins og var Reginn eitt af 18 fyrirtækjum sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni. Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn á Nauthóli, að viðstöddum fulltrúum fyrirmyndarfyrirtækjanna en það eru Stjórnvísi, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland sem veita viðurkenningarnar.
Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.
Á viðurkenningarathöfninni hélt Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands, stutt erindi þar sem hún spurði fundargesti hvort við sem heild værum til fyrirmyndar þegar kemur að tækifærum kynjanna til stjórnunarstarfa. Í máli hennar kom meðal annars fram að þó svo að Ísland leiði lista Alþjóðaefnahagsráðsins er snýr að kynjajafnrétti, 14 árið í röð og hafi fengið gullvottun frá Sameinuðu þjóðunum árið 2022 sem viðurkenningu á hlutverki Íslands sem leiðandi ríki í jafnréttisbaráttu, þá væri staðan óásættanleg þegar kemur að stöðu kvenna í framkvæmdastjórastöðum og stjórnum hér á landi. Almennt eru konur einungis 21% allra framkvæmdastjóra hér á landi en karlmenn 79% og hjá skráðum félögum væru konur 13% forstjóra.
Þegar litið væri til stjórna allra félaga væru konur fjórðungur stjórnarmanna en um 44% hjá skráðum félögum og þar er það kynjakvótinn sem hefur áhrif. Ásta Dís velti því upp hverjir það væru sem gætu breytt stöðunni hér á landi og nefndi fjölmörg dæmi í því samhengi. T.d væru það stjórnvöld sem m.a. gætu farið þá leið að setja á kynjakvóta á framkvæmdastjórnir félaga, fjárfestar gætu sett ákvæði í eigendastefnu sína. Atvinnulífið gæti einnig lagt sitt af mörkum til að breyta stöðunni og þar þyrftu leiðtogar stærstu félaganna og samtakanna að vera öflugir talsmenn jafnréttis. Síðast en ekki síst gætu stjórnir félaga komið á menningu jafnra tækifæra og innleitt arftakaáætlanir í félög. Ásta Dís lauk máli sínu á því að jafnrétti er ákvörðun og til þess þarf að hafa öflugar fyrirmyndir líkt og þau sem fengu viðurkenninguna á viðburðinum.

Sjálfbærnidagur Landsbankans 2023

Reginn hagnast um 6,1 milljarð á fyrri árshelmingi - hagnaður jókst um 66%
