Reginn og Hagsýn bókhalds- og rekstrarþjónusta ehf. hafa undirritað leigusaming um 300 m2 húsnæði á 4. hæð í Hlíðasmára 11. Hagsýn sérhæfa sig í bókhalds- og rekstrarlausnum fyrir frumkvöðla, sjálfstæða atvinnurekendur, smærri og meðalstór fyrirtæki.
Gluggavinir ehf og Reginn hafa endurnýjað leigusamning í Hlíðasmára 11 þar sem Gluggavinir eru með söluskrifstofu sína. Gluggavinir bjóða viðskiptavinum sínum upp á PVC-, ál-, ál/tré- og tréglugga og hurðir ásamt vinnu við ísetningu.
08.
jún.

Valfrjálst yfirtökutilboð Regins hf. í Eik fasteignafélag hf.
Stjórn Regins hefur sent tilkynningu í Kauphöll Íslands þar sem tilkynnt var um ákvörðun stjórnar um að lagt verði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. Við sjáum fyrir okkur nýja sókn þessara tveggja félaga undir nýju nafni og merki.
07.
jún.

Fasteignamat 2024
Fasteignamat eignasafns Regins kemur til með að hækka um 2% milli áranna 2023 og 2024. Atvinnuhúsnæði í heild sinni á landinu hækkar hins vegar um 4,8%.
26.
maí

Reginn gefur út nýja græna skuldabréfaflokka
Þann 25. maí 2023 voru gefnir út tveir nýir grænir skuldabréfaflokkar. Báðir flokkarnir eru grænir og eru veðtryggðir undir almenna tryggingarfyrirkomulagi Regins. Með farsælu útboði á þessum tveimur flokkum náðust öll meginmarkmið félagsins og standa meðal verðtryggðir vextir félagsins í um 2,84% í kjölfar útboðsins.