Almennar fréttir / 2. júlí 2012

NASDAQ OMX Iceland býður Regin hf. velkomið á markað

NASDAQ OMX tilkynnir að í dag hefjast viðskipti með hlutabréf Regins hf. (auðkenni: REGINN) á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland. Reginn flokkast sem lítið félag (e. small cap) innan fjármálageirans. Reginn er fjórða félagið sem skráð er á Aðalmarkað innan NASDAQ OMX Nordic á árinu 2012 en fyrsta félagið sem skráð er á NASDAQ OMX Iceland á þessu ári.

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins:

„Reginn hefur síðan frá hausti 2010  stefnt að skráningu á markað. Þessi áfangi markar hins vegar ekki endi á ferlinu heldur nýtt upphaf í sögu félagsins. Um þúsund hluthafar standa nú að baki Regin sem sýnir mikið traust á eignasafni, rekstri  og framtíðarsýn félagsins. Við teljum mikil sóknarfæri framundan og þetta mun auðvelda félaginu að nýta þau sem best.“

Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland:

“Við bjóðum Regin hjartanlega velkomið í Kauphöllina, en Reginn er fyrsta fasteignafélagið sem skráð er á markað hér á landi. Félagið er góð viðbót við hinn vaxandi hlutabréfamarkað og eykur fjölbreytni fjárfestingakosta. Reginn hefur nú nýjan áfanga sem skráð félag þar sem það mun njóta aukins sýnileika og aðgangs að nýjum hópi fjárfesta. Við óskum félaginu góðs gengis.”

Landsbankinn er umsjónaraðili með skráningunni en Landsbankinn ásamt Íslandsbanka eru viðskiptavakar.

omx2juli2012omx2juli

omx3omx4

Hér má sjá myndbönd frá skráningarathöfn 2.júlí.2012

Páll Harðarson og Helgi S. Gunnarsson segja nokkur orð

Viðtal við Helga S. Gunnarsson

Júlía Björgvinsdóttir

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.