Almennar fréttir / 3. október 2013

Kauptilboð Regins í fasteignina að Austurstræti 16 samþykkt

Eigandi fasteignarinnar Austurstræti 16 í Reykjavík  hefur samþykkt kauptilboð dótturfélags Regins  hf.  í alla eignina.  Fasteignin sem byggð var á árunum 1916 - 1918 og  þekkt er sem gamla Reykjavíkurapótek er 2.773 m2 að stærð. Eignin er ein af perlum Reykjavíkurborgar og stendur við Austurvöll. Hönnuð af Guðjóni Samúelssyni, arkitekti og húsameistara ríkisins. Húsið á sér merkilega sögu í íslensku athafnalífi og er samofið uppbyggingu og sögu Reykjavíkurborgar. Húsið er friðað að utan, einnig tekur friðun til stigagangs að sunnan og innréttinga sem áður stóðu í apóteki.

Reginn telur eignina bjóða upp á mikla möguleika vegna einstakrar staðsetningar í miðbæ Reykjavíkur og nálægð við þjónustu, veitingastaði og menningalíf. Reginn hefur hug á því að fara í samstarf við öfluga aðila varðandi nýtingu hússins undir hótel-  og veitingarekstur.  Vandað verður til verka hvað varðar hönnun og breytingu innanhúss.

Áætlað er að kaupsamningur verði undirritaður í október 2013.

Kaup þessi eru innan ramma fjárfestingastefnu Regins sem felur meðal annars í sér að auka hlut í húsnæði  tengdu ferðaiðnaðinum.  Kaupverðið er trúnaðarmál.

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.