Almennar fréttir / 30. nóvember 2023

Jólaljós Hamborgartrésins tendruð á Miðbakka Reykjavíkurhafnar 2. desember.

Laugardaginn 2. desember kl 17:00 verða jólaljósin á Hamborgartrénu á Miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn tendruð.
Við erum stolt af því að taka þátt í að viðhalda þeim fallega sið að tryggja, í samstarfi við önnur fyrirtæki með starfsemi við gömlu höfnina í Reykjavík, að Hamborgartréð standi á svæðinu fyrir hver jól og komi þeim sem eiga leið hjá í jólaskap og minni í leiðinni á þau góðu gildi sem fylgja jólahátíðinni.
Sagan hefst árið 1947 í þýsku hafnarborginni Hamborg sem var enn í sárum eftir seinni heimsstyrjöldina. Útgerðamaðurinn Friðþjófur Ó. Jóhannesson frá Patreksfirði hafði farið utan til náms í verslunarskóla, í þýsku borginni Flensborg, á millistríðsárunum. Þar kom Friðrik sér upp góðum tengingum við Þýskaland og því fór svo að árið 1947 hóf togarinn Gylfi, sem Friðrik gerði út, að sigla með ísfisk og síld beint til Hamborgar.
Mikil örbyrgð var í Hamborg á þessum árum og vildi Friðþjófur þess vegna aðstoða eins og unnt var. Erlendur Árnason fyrrum matsveinn um borð í togaranum Gylfa, var fenginn til að elda fiskisúpu og bjóða upp á meðan verið væri að landa úr togaranum. Þetta góðverk spurðist fljótt út meðal almennings í Hamborg og fjöldi matargesta jókst með hverri skipakomu. Útgerð Gylfa bað því áhöfnina að elda rausnarlega af fiskisúpu og að hafa með sér ríflegar birgðir af kaffi, smjöri, kjötmeti og öðrum varningi sem skortur var á í Þýskalandi á þessum tíma. Allt varningur sem hægt var að gauka að fólki þegar það yfirgaf togarann að fiskisúpu lokinni.
Þetta góðverk skipverja og útgerðar Gylfa gleymdist ekki og nokkru síðar vildu hafnaryfirvöld í Hamborg launa Íslendingum þetta góðverk. Friðþjófur var því spurður hvað myndi gleðja heima á Íslandi og nefndi hann strax „jólatré“. Árin liðu og árið 1965 kom hópur Íslendinga í Þýskalandi sem kallaði sig „Wikingerrunde“ því til leiðar að loks gætu hafnaryfirvöld í Hamborg gefið Reykjavíkurhöfn myndarlegt jólatré sem þakklætisvott til íslenskra sjómanna fyrir löndun á ferskum fiski og matargjafir að stríði loknu.
Nú í ár verður 58. Hamborgartréð reist í Gömlu höfninni í Reykjavík. Jólatréð er ekki lengur flutt yfir hafið vegna umhverfissjónarmiða og Íslendingar eru orðnir sjálfum sé nógir með íslensk jólatré. En hefðin lifir og gleður nú sem áður.
Með því að smella á hlekkinn hér að neðan má lesa meira um Hamborgartréð og sögu samfélagsbreytinga og þakklætis.

Hér má lesa umfjöllun á vef Landsbankans, eins samstarfsaðila okkar í þessu verkefni, um sögu trésins, sögu samfélagsbreytinga og þakklætis.

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.