Almennar fréttir / 15. janúar 2024

Hluthafafundur 2. febrúar

Stjórn Regins boðar til rafræns hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður föstudaginn 2. febrúar næstkomandi klukkan 15:00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

1. Kosning endurskoðunarfélags

Stjórn leggur til við hluthafafund að Deloitte ehf. verði kjörið sem endurskoðunarfélag félagsins.

2. Önnur mál, löglega fram borin

Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá samkvæmt hluthafakerfi félagsins þegar hluthafafundur fer fram geta beitt réttindum sínum á hluthafafundi. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.

Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu hluthafafundar á netfangið fjarfestatengsl@reginn.is og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúruhafa. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað hvort heldur sem fyrr er.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en ein vika er til fundarins. Mikilvægt er að tillögur berist með það miklum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins, en eigi síðar en 10 dögum fyrir hluthafafund, eða kl. 15:00 þann 23. janúar 2024.

Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins. Fundurinn og atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM. Allir hluthafar sem taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til þess að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, eru beðnir um að skrá sig á skráningarsíðu fundarins: www.lumiconnect.com/meeting/reginn2024egm eigi síðar en klukkan 15:00 þann 31. janúar 2024 eða tveimur dögum fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Gögn vegna fundarins verða aðgengileg á skrifstofu félagsins og á vefsvæði tengdu hluthafafundi á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur, en endanleg dagskrá og tillögur verða aðgengilegar að minnsta kosti einni viku fyrir hluthafafund, sbr. 18 gr. samþykkta félagsins.

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.