Almennar fréttir / 17. apríl 2015

Framboð til stjórnar Regins hf. og krafa um margfeldiskosningu á aðalfundi 21. apríl 2015

Framboðsfrestur til stjórnar Regins hf. rann út þann 16. apríl sl.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Í framboði til aðalstjórnar eru:

Albert Þór Jónsson, kt. 180562-3119

Benedikt K. Kristjánsson, kt. 190952-4879

Bryndís Hrafnkelsdóttir, kt.070864-7899

Jón Steindór Valdimarsson, kt. 270658-6609

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, kt. 180877-4249

Tómas Kristjánsson, kt. 151165-3389

Í framboði til varastjórnar eru:

Finnur Reyr Stefánsson, kt. 140169-3659

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, kt. 100369-5839

 

Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Frambjóðendur til varastjórnar eru sjálfkjörnir.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi.

 

Krafa um margfeldiskosningu

Stjórn Regins hf. hafa borist kröfur frá hluthöfum um að beitt verði margfeldiskosningu til kosningar stjórnar Regins hf. sem fram fer á aðalfundi félagsins þann 21. apríl næstkomandi. Umræddar kröfur bárust stjórn innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 1/10 hlutafjár sbr. 23. gr. samþykkta félagsins og 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.  Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið.

Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti sbr. c. lið 6. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu.

 

Kópavogur, 17. apríl 2015

Stjórn Regins hf

Frambjóðendur til stjórnar Regins hf. 2015


Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.