Almennar fréttir / 26. nóvember 2012

Dagskrá hluthafafundar Regins 4. desember 2012


Hluthafafundur  Regins hf.  verður haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, Austurbakka 2, 101 Reykjavík,  þriðjudaginn 4. desember 2012 og hefst kl. 15.00, stundvíslega. Fundurinn er í salnum Ríma.

Dagskrá fundarins :

1.     Kosning tveggja nýrra stjórnarmanna

2.     Tillaga lögð fram um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum

3.      Önnur mál.

Tillögur stjórnar Regins hf.

1.     Kosning tveggja stjórnarmanna.

Lagt er til að eftirgreindir aðilar sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn Regins hf. verði kosnir til setu í stjórninni fram að næsta aðalfundi félagsins:  

Guðrún Blöndal,            kt. 270360-3869

Benedikt Kristjánsson,  kt. 190952-4879

Greinargerð:

Stjórnarmennirnir Fjóla Þ. Hreinsdóttir og Hjördís Halldórsdóttir hafa sagt sig úr stjórn félagsins og því er nauðsynlegt að kjósa nýja aðila til setu í stjórninni í þeirra stað.

2.    Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum

Hluthafafundur í Reginn hf. haldinn þann 4. desember 2012 samþykkir með vísan til 55. greinar hlutafélagalaga nr. 2/1995, að heimila stjórn félagsins á næstu þremur árum að kaupa hlutabréf í félaginu sjálfu.  Kaupverð bréfanna skal miðast við síðasta skráða dagslokargengi á markaði áður en samningur um hlutafjárkaupin er gerður.  Ekki eru sett lágmörk á heimild þessa hvað fjölda hluta varðar. Félagið og dótturfélög  þess mega aldrei eignast fleiri hluti í sjálfu sér en lög bjóða, nú 10% af hlutafénu.

Ofangreind dagskrá og tillögur eru hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Smáralind, 3. hæð, að Hagasmára 1, 201 Kópavogur, frá og með 27. nóvember 2012. Upplýsingarnar eru auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins,  www.reginn.is.   Fundargögn verða afhent á fundarstað.

Kópavogur, 26. nóvember 2012

Stjórn Regins hf.




Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.