Almennar fréttir / 21. nóvember 2012

Breyting á deiliskipulagi Hljómalindar- og Brynjureits auglýst

Hljómalindareitur 1.171.1
Hljomalindarreitur21

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.1, sem afmarkast af Hverfisgötu, Klapparstíg, Laugavegi og Smiðjustíg. Í breytingunni felst uppbygging á svokölluðum Hljómalindarreit. Gert er ráð fyrir fjögurra til fimm hæða byggingum umhverfis reitinn og almenningstorgi í honum miðjum. Starfsemi á reitnum er í stórum dráttum verslun og þjónusta á jarðhæðum húsa sem snúa að götum og torgi og atvinnustarfsemi og íbúðir á efri hæðum. Tillagan gerir einnig ráð fyrir aukinni áherslu á varðveislu eldri húsa og að viðhalda minningum um hús sem hverfa. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna:

Skoða tillögu (PDF)   
Skilmálateikning (PDF)  
Skýringarmynd (PDF)

Brynjureitur21

Brynjureitur 1.172.0                                                      Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.0, sem afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg Hverfisgötu og Vatnsstíg. Í breytingunni felst uppbygging á svokölluðum Brynjureit og er deiliskipulagi breytt á hluta reitsins sem tekur yfir Hverfisgötu 40-44 , Klapparstíg 31 og Laugaveg 23, 27A og 27B. Tillagan gerir ráð fyrir að á reitnum rísi íbúða- og atvinnuhúsnæði.  Að  Hverfisgötu 40, 42 og 44 og á baklóðum  er gert ráð fyrir nýbyggingum. Gegnum reitinn frá Hverfisgötu að Laugavegi og Klapparstíg verður göngugata og miðað við að meðfram henni á jarðhæð verði verslunar-  atvinnu- og þjónustuhúsnæði. Gert er ráð fyrir að göngugötunni verði  lokað á næturnar sem verður þá einkasvæði þeirra sem þar munu búa. Timburhúsið að Laugavegi 23 verður varðveitt og gert upp. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna:

Skoða tillögu (PDF)  
Skýringarmynd (PDF)

Reginn hf. annast tímabundið umsýslu og rekstur ýmissa þróunarverkefna fyrir dótturfélag Landsbankans Hömlur ehf. Eitt þessa verkefna er Laugavegsreitir ehf.  Félagið Laugavegsreitir ehf. er eigandi að byggingarreitum Brynju- og Hljómalind, sem hafa á undanförnum mánuðum verið í þróun og undirbúning að skipulagsferli.

Nánar um tillögur og upplýsingar má nálgast hér.

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.