Almennar fréttir / 11. júní 2012

Birting lýsingar Regins hf.


Í tengslum við hlutafjárútboð í Regin hf. og umsókn um töku allra hlutabréfa í Regin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin), hefur Reginn birt lýsingu sem dagsett er 11. júní 2012. Lýsinguna má nálgast rafrænt á vefsíðu Regins, www.reginn.is. næstu 12 mánuði og útprentuð eintök má nálgast í höfuðstöðvum Regins í Hagasmára 1 í Kópavogi. Áður en fjárfestar taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Regin eru þeir hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar sem lýsingin hefur að geyma og skilmála útboðsins sem þar koma fram.

Lýsing Regins hf. dagsett 11. júní 2012.

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.