Almennar fréttir / 19. júlí 2017

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á FM húsum ehf.

Þann 30. maí sl. var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og FM húsa ehf. um kaup á 55% hlutafé í FM – húsum ehf. Kaupsamningurinn innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að kaup Regins hf. á ofangreindu félagi feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.