STJÓRN REGINS

Stjórn fer samkvæmt lögum og samþykktum félagsins með æðsta vald í málefnum félagsins milli hluthafafunda. Stjórn félagsins fjallar um og tekur allar óvenjulegar og mikilsháttar ákvarðanir er móta stefnu félagsins en forstjóri annast rekstur í samræmi við mótaða stefnu og ákvarðanir stjórnar. 

Stjórn Regins hf. er skipuð eftirtöldum aðilum frá og með 7. mars 2023

Tómas Kristjánsson
Stjórnarformaður

Tómas Kristjánsson

Í stjórn frá apríl 2014
Menntun: MBA frá háskólanum í Edinborg 1997, Cand. Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1989, löggiltur verðbréfamiðlari 2001.
Aðalstarf: Starfar sem annar eiganda Siglu ehf.

Starfsreynsla: Starfandi annar eigandi hjá Siglu ehf. og Klasa ehf. frá árinu 2007, 1998-2007 framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjárstýringar og reikningshalds hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, síðar Íslandsbanka/Glitni banka, 1990-1998 yfirmaður lánaeftirlits Iðnlánasjóðs.
Bryndís Hrafnkelsdóttir
Varaformaður

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Í stjórn Regins frá apríl 2014
Menntun: Viðskiptafræðingur Cand. Oecon 1989 og. og M.S. gráða í viðskiptafræði 2015 frá Háskóla Íslands
Aðalstarf: Forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands frá 2010.

Starfsreynsla: Landfestar fjármálastjóri frá 2008-2010, Kaupþing banki hf. sérfræðingur á fjármálasviði samstæðu frá 2007-2008, Debenhams á Íslandi, framkvæmdastjóri 2000-2006, Hagkaup fjármálastjóri frá 1996-2000, Hof eignarhaldsfélag aðalbókari frá 1994-1996 og KPMG endurskoðun og bókhald frá 1990-1993.
Benedikt Olgeirsson
Meðstjórnandi

Benedikt Olgeirsson

Í stjórn Regins frá mars 2022
Menntun: M.Sc. í framkvæmdaverkfræði og verkefnastjórnun frá University of Washington í Seattle 1987 og B.Sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands 1982.
Aðalstarf: Sjálfstætt starfandi við stjórnarsetur, ráðgjöf og fjárfestingar

Starfsreynsla: Framkvæmastjóri innviðaþróunar Landspítala (2019-2021), Framkvæmdastjóri þróunar á Landspítala (2015-2019), Aðstoðarforstjóri Landspítala (2010-2015), Framkvæmdastjóri umbreytingaverkefna hjá Atorku (2005-2009), Framkvæmdastjóri Parlogis (2004-2005) auk annarra stjórnunarstarfa hjá Eimskip (1993-2004).
Guðrún Tinna Ólafsdóttir
Meðstjórnandi

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Í stjórn Regins frá mars 2018
Menntun: M.S. gráða í fjármálum frá Háskóla Íslands 2011. Prisma, diplómanám frá Listaháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst 2009. B.S. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1998.
Aðalstarf: Framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar frá 2020.

Starfsreynsla: Rekstrarstjóri verslunarsviðs Fríhafnarinnar ehf. (2018-2020), Framkvæmdastjóri Igló ehf. (2011-2016). Verkefnastjóri Baugur Group 2002-2009 á sviði smásölu, fasteigna og trygginga. Senior Account Manager Kaupthing Bank Luxembourg SA 2000-2002. Stjóðstjóri og eignastýring Verðbréfasjóður Íslandsbanka VÍB 1997-2000.
Heiðrún Emilía Jónsdóttir
Meðstjórnandi

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Í stjórn Regins frá mars 2019.
Menntun: Cand.jur. frá Háskóla Íslands og réttindi til málflutnings í héraðsdómi 1996. Starfsmannastjórnun frá Háskólanum á Akureyri 1999, löggildingu í verðbréfamiðlun 2006 og AMP frá IESE Business School 2017.
Aðalstarf: Framkvæmdastjóri SFF frá 2022.

Starfsreynsla: Framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Eimskips frá 2006- 2012, framkvæmdastjóri hjá LEX lögmannsstofu frá 2003-2005, upplýsingafulltrúi Landsímans frá 2001- 2003, framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs og lögfræðingur hjá KEA frá 1998-2001 og lögmaður hjá Lögmannsstofu Akureyrar frá 1995-1998.

Forstjóri Regins hf.

  • Halldór Benjamín Þorbergsson

 

Endurskoðunarnefnd:

Anna Þórðardóttir löggiltur endurskoðandi, formaður

Benedikt Olgeirsson

Heiðrún Jónsdóttir

 

Starfskjaranefnd:

Guðrún Tinna Ólafsdóttir, formaður

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Tómas Kristjánsson

 

Tilnefningarnefnd:

Guðfinna S. Bjarnadóttir, formaður

Ína Björk Hannesdóttir

Árni Gunnarsson