Almennar fréttir / 1. nóvember 2016

Reginn hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2016

Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2016, eftir lokun markaða föstudaginn 4. nóvember 2016.

Af því tilefni býður Reginn til opins kynningarfundar mánudaginn 7. nóvember 2016 kl. 08:30 í nýuppfærðum austurinngangi Smáralindar (við Hagkaup), Hagasmára 1, 201 Kópavogi.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

- Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið og svarar spurningum.

- Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf., mun kynna stöðu á endurskipulagningu Smáralindar sem og vænt áhrif á afkomu félagsins til framtíðar.

Að loknum kynningarfundi mun Håkan Pehrsson, retailráðgjafi Smáralindar kynna strauma og stefnur í skipulagningu og uppbyggingu verslanamiðstöðva í nágrannalöndum okkar.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

livestream.com/accounts/11153656/events/6546824/player

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.