Almennar fréttir / 20. ágúst 2015

Reginn hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2015

Reginn hf. mun birta samþykkt uppgjör fyrir annan ársfjórðung ársins 2015, eftir lokun markaða þriðjudaginn 25. ágúst 2015.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar miðvikudaginn 26. ágúst 2015 kl. 08:30 í Borgartúni 29, 1. hæð, Reykjavík.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/a8c47b2d0958414ea0dc849a4c728e681d

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu.

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is


Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.