Almennar fréttir / 25. ágúst 2020

Reginn er fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Reginn hlaut á dögunum viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Dagbjört Erla Einarsdóttir, yfirlögfræðingur félagsins, tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd Regins.
Viðurkenningin byggir á úttekt á stjórnarháttum félagsins og var Reginn eitt af 17 fyrirtækjum sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni. Úttektin tekur mið af leiðbeiningum um góða stjórnarhætti sem eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi. Stjórnvísi er umsjónaraðili viðurkenningarferlisins.
Við erum afar stolt af þessari mikilvægu viðurkenningu.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.