Almennar fréttir / 14. febrúar 2012

Reginn ehf. auglýsir eftir verkefnastjóra

Reginn ehf. auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra hjá félaginu. Reginn ehf. er einkahlutafélag í eigu Landsbankans. Tilgangur félagsins er að annast umsýslu og rekstur fasteigna og fasteignafélaga. Í því felst að félagið leigir
út, kaupir og selur fasteignir. Reginn vinnur auk þess að uppbyggingu og þróun einstakra fasteignaverkefna.

Félagið á dótturfélög sem sérhæfa sig í ákveðnum tegundum fasteigna, svo sem atvinnuhúsnæði, íbúðarhúsnæði og
þróunarverkefnum. Félagið verður skráð í Kauphöll Íslands á fyrri hluta árs 2012.

Leitað er að áhugasömum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur reynslu af verkefnastjórnun. Megin verkefnið verður umsjón með „Laugavegsreitum“ sem félagið er að kaupa og mun þróa áfram og selja.

Helstu verkefni

  • Verkefnastjórnun við uppbyggingar- og þróunarverkefni.
  • Undirbúningur, stjórnun og eftirlit með verkefnum á sviði fasteignauppbyggingar og reksturs.
  • Áætlanagerð á sviði byggingaframkvæmda og fasteignareksturs ásamt eftirfylgni og frávikagreiningu.
  • Stjórnun byggingatæknilegra verkefna, s.s. umsjón með samningum við ráðgjafa, verktaka og þá aðila sem koma að viðkomandi verkefnum.
  • Útboð, almenn innkaup og samningagerð á sviði fasteignareksturs.
  • Þátttaka í áætlanagerð og hagkvæmnisútreikningum.

Hæfniskröfur og eiginleikar

  • Háskólamenntun á sviði byggingaverkfræði, arkitektúrs eða sambærilegt.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Frumkvæði og fagmennska í starfi.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Færni í samskiptum og þægilegt viðmót.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Júlía Björgvinsdóttir, Reginn ehf., í síma 512 8900

Umsóknir og fylgigögn sendist á julia@reginnehf.is merkt „Reginn ehf. verkefnastjóri“.

Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2011.

Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.