Almennar fréttir / 4. september 2018

Glæsileg aðstaða í Skútuvogi

Nýlega fékk Arctic Adventures afhent glæsilegt skrifstofuhúsnæði að Skútuvogi 2.  Óhætt er að segja að vel hafi tekist til við að skapa nýjar og aðlaðandi höfuðstöðvar fyrir þetta öfluga og ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki, sbr. meðfylgjandi myndir.  Félagið var áður til húsa í öðru leiguhúsnæði hjá Reginn að Vatnagörðum 8 en í kjölfar aukinna umsvifa og sameiningar við annað fyrirtæki var starfsseminni fundið nýtt húsnæði að Skútuvogi 2 með þessari vel heppnuðu útkomu.

 

 

 

Töluverð endurnýjun hefur átt sér stað á húsnæðinu að Skútuvogi 2 sem gefur fyrirtækjum tækifæri til að fá leigurými í glæsilegu húsnæði á eftirsóknarverðum stað.  Húsið er staðsett í næsta nágrenni við Sundahöfn og alveg við Sæbraut sem hefur mikið auglýsingagildi. Fjöldi bílastæða er við húsið og gott athafnarými.

Ennþá eru nokkur laus útleigurými í húsinu, bæði á jarðhæð og á annarri hæð sem getur hentað þörfum stærri sem smærri rekstraraðila. Nánari upplýsingar um laus rými má finna hér

 

 

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.