Almennar fréttir / 11. ágúst 2015

Apótek í auglýsingu American Express

Nýverið var tekin upp auglýsing fyrir kortafyrirtækið American Express á Apótek Restaurant sem er með aðsetur í Austurstræti 16.  Apótek Restaurant hóf starfsemi í húsinu í desember 2014, á sama tíma og Apótek Hótel.

Mikill fjöldi kom að gerð auglýsingarinnar en gert er ráð fyrir því að auglýsingin verði eingöngu sýnd erlendis.  American Express hefur tekið áður þátt í svona verkefnum með góðum árangri.

Auglýsingin er önnur rós í hnappagatið fyrir veitingastaðinn vinsæla en auk þessa raðaði Apótek Restaurant sér á meðal 17 bestu veitingastaða á Nörðurlöndunum að mati Buzzfeed fyrir stuttu.

Mbl.is greindi frá málinu á dögunum, sjá hér og hér.


Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.