Almennar fréttir / 18. júlí 2014

Tilkynning um undirritun Regins hf. á kaupsamningi vegna hluta Hörpureita 1 og 2 við Austurbakka

Undirritaður hefur verið kaupsamningur milli Regins hf. og Landstólpa þróunarfélags ehf.  um kaup Regins á öllu verslunar- og þjónusturými á reitum 1 og 2 við Austurbakka 2 (Hörpureitum). Alls er um að ræða um 8.000 m2 útleigurými sem að megninu til er staðsett á 1. og 2. hæð bygginganna. Gera má ráð fyrir að jöfn skipting geti verið á milli verslunar- og þjónustustarfsemi í þessari einingu. Á reitunum er að auki fyrirhuguð uppbygging á íbúðarhúsnæði og skrifstofurými, sem er ekki hluti af þessum kaupsamningi.

Landstólpar þróunarfélag ehf., sem er eigandi lóðanna og mun byggja upp verkefnið, er í eigu Stólpa ehf. og Landey ehf.  Landstólpar þróunarfélag ehf. er í meirihlutaeigu Stólpa ehf.  

Að mati Regins er um að ræða mjög áhugavert svæði sem mun styrkja og efla miðbæ Reykjavíkur sem verslunar- og þjónustusvæði. Reginn áformar að tengja starfsemi, rekstur og markaðsstarf Smáralindar við þennan nýja miðbæjarkjarna í nánu samstarfi við núverandi og nýja rekstraraðila.

Sem lið í að styrkja verkefnið hefur Reginn ráðið alþjóðlega sérfræðiráðgjafa, við skipulag og hönnun verslunar- og þjónustukjarnans, til að vinna í nánu samstarfi við ráðgjafa og hönnuði seljanda. Þessir aðilar munu einnig koma að öflun nýrra leigutaka. Frekari kynning á hugmyndum og nálgun verkefnisins verður kynnt síðar.

Kaupverðið er trúnaðarmál á þessu stigi, en í umfangi er um að ræða 3,5% aukningu á eignasafni Regins, mælt í fermetrum, en fyrir á félagið um 220 þús.m2 af fasteignum, þar af eru um 90 þús.m2 verslunarhúsnæði. Gert er ráð fyrir að verkefnið taki um 3 ár.  Ekki er hægt eðli málsins samkvæmt að tilgreina nákvæmlega áhrif kaupanna á afkomu félagsins en Reginn mun upplýsa nánar um slíkt þegar nær dregur og fyrir liggja samningar við stærstu leigutakana.

Kaupsamningurinn er háður nokkrum skilyrðum og fyrirvörum. Fyrirvari er um samþykki stjórnar Regins, svo og fjármögnun verkefnisins.

Tilkynning um undirritun Regins hf. á kaupsamningi vegna hluta Hörpureita 1 og 2 við Austurbakka

Annað fréttnæmt

12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.