Almennar fréttir / 18. júlí 2017

Samkomulag um kaup á reit 5b við Austurhöfn

Reginn hf. hefur skrifað undir samkomulag um einkaviðræður, við fyrirtækið Austurhöfn ehf. (áður Kolufell ehf.), um kaup félagsins á öllu atvinnuhúsnæði á reit 5b á lóðinni Austurbakki 2 í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða 2.700 m2 verslunar- og veitingarými sem er einstaklega vel staðsett á horni Geirsgötu og Austurhafnar. Byggingarnar sem munu hýsa áðurnefnd verslana- og veitingarými eru afmarkaðar af Gömlu höfninni, Marriott EDITION fimm stjörnu hóteli sem er nú í byggingu, fyrirhuguðum höfuðstöðvum Landsbankans og Hafnartorgi. Rýmið tengist bílakjallara sem nær frá Hörpu niður á Lækjatorg.

Um er að ræða verslunar- og veitingarými að langmestu á jarðhæð, en að litlum hluta í kjallara og 2. hæð. Kaupin ef af verða falla vel að fjárfestingastefnu félagsins sem felur í sér að auka hlut félagsins m.a. í hágæða atvinnuhúsnæði á sterkum markaðssvæðum.

Miðað er við að rýmin verði afhent tilbúið til útleigu um mitt ár 2019.

Tilgangur viðskiptanna ef af verður, er að styrkja viðskiptahugmyndir Regins á svæðinu enn frekar. Félagið hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að verslana- og þjónusturými á þessu einstaka svæði í miðbæ Reykjavíkur verði hugsuð, skipulögð og rekin sem ein heild. Með því næst betur að tryggja rétta samsetningu og gæði þeirra eininga sem saman mynda fyrirhugaðan verslana- og þjónustukjarna. En fyrir er Reginn kaupandi af öllu verslana og veitingarými á Hafnartorgi sem er staðsett á reitum 1 og 2 á lóðinni Austurbakka 2.

Umfang viðskiptanna hvað varðar fjárhag og stærð, er lítið í samanburði við eignasafn Regins. Þau munu hafa óveruleg áhrif á fjárhag og afkomu Regins.

Samkomulag þetta er með ýmsum fyrirvörum m.a. um áreiðanleikakannanir og samþykki stjórnar Regins.

Nánari upplýsingar veitir

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.