Almennar fréttir / 9. febrúar 2016

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV 1 ehf.

Reginn hf. undirritaði kaupsamning um kaup á fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. þann 30. desember 2015 sem innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu forsendur til að aðhafast frekar vegna samruna Regins hf. og Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf. á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Um kaupin gildir enn fyrirvari um samþykki hluthafafundar Regins hf. 

Annað fréttnæmt

12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.