Almennar fréttir / 27. nóvember 2013

Reginn hf. undirritar leigusamning við Keahótel ehf. að Austurstræti 16

Dótturfélag  Regins hf. og  Keahótel ehf.  hafa undirritað leigusamning um fasteignina  Austurstræti 16, Reykjavík. Fasteignin sem  Reginn samstæðan  festi nú nýverið kaup á  er alls 2.773 m2 að stærð.  Fyrirhugað er að í húsinu verði innréttað og rekið glæsilegt hótel ásamt veitingastað sem hæfa mun  yfirbragði og sögu hússins . Reginn hf. mun sjá um og stýra framkvæmdum á húsinu.  Gert er ráð fyrir að rekstur geti hafist í lok næsta sumar.

Keahótel ehf. eru nú þegar einn af stærri leigutökum Regins en þeir leigja einnig Hótel Kea á Akureyri. Lagt var í umfangsmiklar endurbætur á Hótel Kea í sumar og er hótelið í dag eitt af þeim glæsilegri á landinu.  Keahótel ehf.  reka einnig Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg á Mývatni og í Reykjavík; Hótel Borg, Hótel Björk og Reykjavík Lights.

„Við erum mjög ánægð  með að hafa náð samningum við Keahótel því um er að ræða rekstraaðila með mikla reynslu og sérþekkingu á þessu sviði .  Sömuleiðis eru aðilar  sammála um að varðaveita og hafa að leiðarljósi við hönnun og breytingu innanhúss þann fágaða og glæsilega stíl sem húsið býður upp á  segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins hf.“

„Um er að ræða mikilvægt skref fyrir  rekstur Keahótela að hafa náð leigusamningi um Austurstræti 16.  Keahótel er nú þegar með hótel rekstur í samliggjandi eignum þ.e. Hótel Borg og með því er komin rekstrarleg  samfella milli allra húsanna í lengjunni frá Hótel Borg  til og með Austurstræti 16.  Þetta gefur okkur mikla möguleika í framtíðinni að tengja rekstur þessar hótela saman og samnýta ýmsa rekstraþætti.  Við horfum því bjartsýn til framtíðarinnar og hlökkum til að starfa með Reginn í þessu verkefni sem er framundan segir Páll L. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Keahótel.“

Sjá frekari upplýsingar um Keahótel á heimasíðu félagsins;   http://www.keahotels.is

Áætluð aukning á EBITDA Regins samstæðunnar vegna útleigu á Austurstræti 16  er rúmlega 4% miðað við útgefna rekstraáætlun 2014.


Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.