Almennar fréttir / 26. maí 2015

Reginn hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015

Reginn hf. mun birta samþykkt uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2015, eftir lokun markaða fimmtudaginn 28. maí 2015.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar föstudaginn 29. maí 2015 kl. 16:00 í Borgartúni 29, 1. hæð, Reykjavík.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/6a214fc86bcd45bab96fe9e800f36efb1d

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins hf., mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Í kjölfarið verður Sturla G. Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, með kynningu á verkefnum sem snúa að endurskipulagningu Smáralindar, tengslum Smárabyggðar við Smáralind og vinnu við Hörpureiti 1 og 2.

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is


Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.