Almennar fréttir / 16. maí 2014

Reginn breytir dagsetningu kynningarfundar vegna uppgjörs

Reginn breytir dagsetningu kynningarfundar vegna uppgjörs. Fundurinn verður þann 28. maí næstkomandi kl:16:00 í Ármúla 4-6 en ekki þann 27. maí.

Reginn mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2014, eftir lokun markaða þriðjudaginn 27. maí 2014.

Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/812cdb405bc645ceb88e500f216e207f1d

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu.

Samhliða verður kynnt uppfærð rekstraráætlun félagsins fyrir 2014. Áður birt rekstraráætlun gerði ráð fyrir að eignasafn Klasa Fasteignir ehf. yrði á bókum félagsins frá 1. janúar 2014. Uppfærð áætlun tekur mið af afhendingu eignasafnsins 1. maí 2014.

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Hægt verður að nálgast kynningarefni að kynningu lokinni á:

http://www.reginn.is/fjarfestar/

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið:

fjarfestatengsl@reginn.is

Annað fréttnæmt

12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.