Almennar fréttir / 25. nóvember 2014

Orange Project ehf. færir út kvíarnar í Ármúla 6


Orange Project skrifaði í gær undir nýjan  leigusamning við Reginn Fasteignafélag um enn frekari stækkun á  rými fyrir starfssemi sína.  Starfsemi fyrirtækisins snýr að því að miðla og leigja út skrifstofuhúsnæði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í háum gæðaflokki með sveigjanleika og lausnum sem henta hverjum og einum.

Katrin B. Sverissdóttir, framkvæmdastjóri Reginn Atvinnuhúsnæði, telur að með samningi þessum við Orange Project sé Reginn að fara inn á nýjan markað sem allar líkur væru á að ætti eftir að stækka á komandi árum því skortur hafi verið á svo skipulagðri þjónustu á Íslandi. Svipuð þjónusta sé vel þekkt víða erlendis þótt ekki sé hún jafn umfangsmikil og þjónusta fyrirtækisins.

Tómas Hilmar Ragnars, framkvæmdastjóri Orange Project, segir að samningurinn komi í beinu framhaldi af þeim jákvæðu viðbrögðum sem fyrirtækið hafi fengið við þjónustu sinni og sveigjanleika. Eftirspurn hafi verið meiri en Tómas hafi búist við í upphafi.  „Það var greinilega þörf á heildarlausn sem þessari fyrir fyrirtæki og einstaklinga þar sem öll þjónusta er uppá 10 og allt undir sama þaki. Við skraddarasaumum lausnir fyrir hvert og eitt fyrirtæki og einstaklinga þannig að fólki líði vel og geti vaxið og dafnað í sínum rekstri. Við bjóðum fyrirtækjum jafnt sem einstaklingum uppá lausnir í húsnæðis- og skrifstofuhaldi ásamt ráðgjöf á sviði markaðsmála, innheimtu og lögfræði. Þetta samstarf gerir okkur kleift að geta boðið upp á hágæða húsnæðislausnir á góðu verði og aðrar heildarlausnir sem ekki hafa verið í boði áður á Íslandi. Einnig sjáum við mikla stækkunarmöguleika í þessu samstarfi við Regin til framtíðar,“ segir Tómas.

Nýir viðskiptavinir Orange Project munu byrja að flytja inn þann 1. janúar næstkomandi en nú þegar hafa nokkur fyrirtæki tryggt sér aðstöðu til lengri eða skemmri tíma.  Með þessari stækkun fær Orange Bókhald & Ráðgjöf stærra rými fyrir sína starfssemi því mikill vöxtur hefur verðið í bókhalds, launa, vsk- og ráðgjafavinnu á skömmum tíma. Lausnir Orange Project henta vel fyrir ráðgjafa, lögmenn, arkitekta, sölumenn, félagasamtök, fjárfesta o.fl.
Nánari upplýsingar á vefsíðu Orange Project




 

Annað fréttnæmt

12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.