Almennar fréttir / 1. mars 2016

Ársreikningur Regins hf. 2015

·         Rekstrartekjur námu 5.545 m.kr.

·         Vöxtur leigutekna frá fyrra ári var rúmlega 18%.

·         Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 3.625 m.kr. og jókst um 19% frá fyrra ári.

·         Hagnaður eftir tekjuskatt nam 4.376 m.kr.sem er aukning um 96% frá fyrra ári.

·         Bókfært virði fjárfestingareigna í lok árs var 63.949 m.kr. samanborið við 53.637 m.kr. í árslok 2014. Matsbreyting á árinu var 3.505 m.kr.

·         Handbært fé frá rekstri nam 2.374 m.kr. á árinu 2015.

·         Vaxtaberandi skuldir voru 39.474 m.kr. í lok árs 2015 samanborið við 32.861 m.kr. í árslok 2014. Meðalkjör á verðtryggðum lánum félagsins er 3,95%.

·         Eiginfjárhlutfall var í lok árs 33,4%.

·         Hagnaður á hlut á árinu 2015 var 3,06 samanborið við 1,61 árið áður.

Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa  í árslok 2015 voru 581 samanborið við 628 í árslok 2014.  

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á árinu 2015 var góð og í samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 5.545 m.kr.og þar af námu leigutekjur 4.997 m.kr. Leigutekjur hafa hækkað um 18% samanborið við árið 2014. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 3.625 m.kr. sem samsvarar 19%  hækkun samanborið við árið 2014.

Stjórn félagsins leggur til að ekki verður greiddur arður á árinu 2016. Aðalfundur félagsins verður haldinn 25. apríl nk.

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustu og stöðugu tekjustreymi. Í lok árs 2015 átti Reginn 107 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 272 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins er um 97% miðað við tekjur.

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á árinu 2015 var 3.505 m.kr.

Stækkun félagsins og horfur

Í samræmi við fjárfestingarstefnu félagsins hefur á árinu verið unnið að stækkun og styrkingu á eignasafni þess. Í júní tók félagið við eignasafni sem keypt var af Fastengi ehf. dótturfélagi Íslandsbanka. Um var að ræða safn 79 eigna alls 62.000 m2 að stærð.  Kaupin voru fjármögnuð að stærstum hluta með aukinni skuldsetningu. Útleiguhlutfall í safninu var við kaupin lágt en mjög vel hefur gengið að koma eignum í leigu.

Félagið keypti fasteignirnar Lækjargata 2, Austurstræti 22 og Austurstræti 22a af Reykjavíkurborg í ágúst. Húsin sem eru hágæða eignir staðsettar á einum besta stað í miðborginni eru um  2.500 m2.

Í september var tekið í notkun nýtt  2.250 m2 fimleikahúss við Egilshöll. Reykjavíkurborg leigir allt húsið m.a. undir starfsemi fimleikadeildar Fjölnis.

Í nóvember var undirritað samkomulag við eigendur félaganna Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. um kaup Regins á öllu hlutafé félaganna. Með þeim viðskiptum eignast Reginn eignasafn sem er metið að heildarvirði 10.050 millj. kr. Eignasafnið samanstendur af 23 fasteignum og er heildar fermetrafjöldi safnsins um 43.000 m2. Greitt verður fyrir eignarhluti í félögunum með hlutafjáraukningu í Reginn, beðið er afgreiðslu hluthafafundar á þeirri hlutafjáraukningu.

Á árinu hefur félagið selt 29 fasteignir sem eru alls 20.080 m2 að stærð. Söluverð þessa eigna var 2.588 millj. kr.

Horfur í rekstri

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar eru um annað en að áætlanir félagsins standist.

Kynning á félaginu

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar miðvikudaginn 2. mars kl. 12:00 í Iðnó, Vonarstræti 3, Reykjavík. Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins mun kynna afkomu ársins 2015 og svara spurningum. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/3b49f9d1940d48ed870c0cb2537311261d

Ársreikningur Regins hf. 2015. var samþykktur af stjórn þann 1. mars. Hægt er að nálgast ársreikning félagsins á www.reginn.is/fjarfestar/

 

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.