Almennar fréttir / 26. febrúar 2017

Aðalfundarboð Regins hf. - 15. mars 2017

Stjórn Regins hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Björtuloftum, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, miðvikudaginn 15. mars 2017 og hefst stundvíslega kl. 16.00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi sbr. 15. gr. samþykkta félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl.starfsár.
  2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á næstliðnu reikningsári.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  5. Ákvörðun um heimild stjórnar um kaup á eigin bréfum.
  6. Tillaga stjórnar til breytinga á samþykktum, ef einhverjar hafa borist.
  7. Kosning félagsstjórnar.
  8. Kosning endurskoðanda.
  9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil.
  10. Önnur mál.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en tvær vikur eru til aðalfundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess, www.reginn.is/fjarfestar.

Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins.

Sérstök athygli er vakin á því að samkvæmt samþykktum félagsins ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst sjö sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 8. mars 2017. Framboðum skal skila á skrifstofu Regins hf. í Smáralind, 1. hæð, Hagasmára 1, Kópavogi. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess hversu margir sækja hann sbr. 14. gr. samþykkta félagsins.

Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestar, a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, sbr. 18. gr. samþykkta félagsins. Einnig verða skjölin hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins í Smáralind, 1. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum fyrir aðalfund.

Önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardegi.

Kópavogur, 21. febrúar 2017
Stjórn Regins hf

Annað fréttnæmt

19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.
12. mar.

16 ný hleðslustæði fyrir rafbíla við Smáralind

Nýlega var 16 hleðslustæðum fyrir rafbíla bætt við á bílastæðaplanið sunnan megin við Smáralind. Þessi stæði bætast við þau 16 stæði sem nú þegar má finna norðan megin við húsið.
07. mar.

Aðalfundur 12. mars 2024

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Kaldalón fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 12. mars 2024, kl. 16:00.