Lykiltölur í rekstri ársins 2019
Lykilstærðir | 2019 | 2018 |
Hagnaður | 4.486 m.kr. | 3.266 m.kr. |
Arðsemi fjárfestingareigna (m.v. meðalstöðu) | 5,0% | 4,9% |
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar og afskriftir | 6.711 m.kr. | 5.390 m.kr. |
Rekstrartekjur | 9.848 m.kr. | 8.288 m.kr. |
Leigutekjur | 9.266 m.kr. | 7.737 m.kr. |
Meðallengd samninga m.v. núverandi leigusamninga | 7 ár | 8 ár |
Vaxtaberandi skuldir | 84.021 m.kr. | 80.488 m.kr. |
Handbært fé frá rekstri | 3.406 m.kr. | 2.641 m.kr. |
Handbært fé í lok árs | 2.840 m.kr. | 2.490 m.kr. |
Eiginfjárhlutfall | 31,8% | 31.6% |
Fjárfestingareignir metnar á gangvirði | 137.981 m.kr. | 128.748 m.kr. |
Stöðugildi í lok árs | 57 | 52 |
Hluthafar í lok árs | 434 | 523 |
Ársreikningur 2019
Þróun tekna
Þróun kostnaðar
Rekstrarkostnaður - hlutfall af leigutekjum
Rekstur og útleiga
Árið 2019 einkenndist af mjög góðum árangri þegar kemur að útleigu og endurnýjun samninga félagsins. Samtals voru gerðir samningar fyrir um 46 þúsund fermetra sem er aukning um 13% frá fyrra ári, og helst meðallengd samninga Regins óbreytt sbr. meðallengd undanfarinna ára sem er um 7-8 ár.
Segja má að ákveðið jafnvægi sé komið á útleigumál félagsins sem og eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði almennt á markaðnum. Í samræmi við útleiguhlutfall Regins á árinu sem var 97,5% er ljóst að nýting á fasteignum félagsins er mjög góð og félagið því vel í stakk búið fyrir frekari uppbyggingu eignasafnsins.