Skipulag

 

 

Skýringar með skipuriti Regins ehf.

Stjórnskipulag félagsins

  • Reginn ehf. er móðurfélag samstæðunnar. Í félaginu fer fram dagleg stjórnun á samstæðunni, samræming og umsjón með starfsemi dótturfélaga.
  • Eignarhaldsfélög eiga hlutabréf í dótturfélögum. Engin dagleg starfsemi er í eignarhaldsfélögunum.
  • Rekstrarfélög fasteigna eiga fasteignir og reka, afla tekna með leigu og starfsemi, borga af lánum tengdum fasteignunum.

Kostir þess að skipta samstæðunni upp í þrjú þrep með mörgum lögaðilum eru eftirfarandi:

  • Skýr aðgreining eininga fæst með þessum hætti og ákveðinn sveigjanleiki, sérstaklega þegar kemur að sölu og umsýslu fasteigna eða félaga.
  • Aðgreining með fleiri lögaðilum og þrepaskiptingu eykur möguleika á gegnsæi.
  • Með eignarhaldsfélögunum verður til ákveðin aðgreining, gefur möguleika á sér ársreikningum fyrir hvern flokk fasteigna, aðgreining við sölu og rekstur.
  • Með tilkomu eignarhaldsfélaga gefst kostur á að hafa ábyrgðir með þeim hætti að sala eigna er einfaldari.

 

Yfirlit yfir félög innan Reginn samstkæðunnar

  • Reginn ehf., kt. 630109-1080 hóf starfsemi í ágúst 2009.
  • Reginn A1 ehf., kt. 521009-1010 hóf starfsemi í desember 2009 og er að fullu í eigu Regins atvinnuhúsnæðis ehf.
    Fasteignir í eigu RA1:
    Borgartún 33, Brúarvogur 1-3, Reykjavíkurvegur 74, Súðarvogur 1-5, Suðurlandsbraut 14, Suðurhraun 1, Vatnagarðar 6, Vatnagarðar 8, Vínlandsleið 1.
  • Reginn A2 ehf., kt. 630210-1000 hóf starfsemi í júlí 2010 og er að fullu í eigu Regins atvinnuhúsnæðis ehf.
    Fasteignir í eigu RA2:
    Ármúli 26, Bíldshöfði 9, Borgartún 20, Brekkuhús 1, Furugrund 1, Hlíðasmári 11, Köllunarklettsvegur 4, Laugavegur 116, Mörkin 4, Síðumúli 31, Skúlagata 19, Vesturvör 32b og c, Víkurhvarf 1.
  • Reginn A3 ehf., kt. 630888-1079 var stofnað árið 1988 en var keypt í júní 2010 og er að fullu í eigu Regins atvinnuhúsnæðis ehf.
    Fasteignir í eigu RA3:
    Grensásvegur 46, Hraunbær 102A, Hringbraut 121, Lóuhólar 2-4, Lóuhólar 6, Rofabær 39, Þverbrekka 8.
  • Reginn Í1, kt. 521009-1360 hóf starfsemi í ágúst 2010 og er að fullu í eigu Regins íbúðarhúsnæðis ehf.
    Fasteignir í eigu RÍ1:
    Háteigsvegur 7, Sólmundarhöfði 7, Þverholt 15-19, Þverholt 21.
  • Reginn ÞR1, kt. 521009-1280 hóf starfsemi í júní 2010 og er að fullu í eigu Regins Þróunarfélags ehf.
    Fasteignir í eigu ÞR1:
    Bíldshöfði 9a (nýbygging), Dalvegur 32, Dugguvogur 1a, Dugguvogur 2, Héðinsgata 1-3, Héðinsgata 2, Hlíðasmári 4, Hæðarsmári 1-5, Kross I og II, Köllunarklettsvegur 3, Skógarlind 1, Súðarvogur 4, Súðarvogur 6, Súðarvogur 12, Urðarhvarf 4.
  • Laugahús ehf., kt. 470802-2270 var stofnað árið 2002 en var keypt í september 2010 og er að fullu í eigu Regins Atvinnuhúsnæðis.
    Fasteign í eigu Laugahúss er:
    Sundlaugavegur 30a.
  • Laugavegsreitir ehf., kt. 460509-0410 hóf starfsemi í nóvember 2011 og er að fullu í eigu Regins Þróunarfélags ehf.
    Fasteignir í eigu Laugavegsreita: 
    Hverfisgata 26, Hverfisgata 28, Hverfisgata 30, Hverfisgata 32, Hverfisgata 32 A og B, Hverfisgata 34, Hverfisgata 40, Hverfisgata 42, Hverfisgata 44, Hverfisgata 46, Klapparstígur 28, Klapparstígur 30, Klapparstígur 31, Laugavegur 17,  Laugavegur 19 og 19B, Laugavegur 21, Laugavegur 23, Laugavegur 27A og B, Smiðjustígur 4, Smiðjustígur 4A, Smiðjustígur  6.
  • Fasteignafélag Íslands ehf., kt. 430700-3590 hóf starfsemi árið 2000 er keypt í desember 2009 og er að fullu í eigu Regins ehf.
    Fasteignir í eigu FFÍ er:
    Hagasmári 2, Hagasmári 4, Hæðarsmári 7-13, auk þess á félagið allt hlutafé í Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf., kt. 550496-2329 sem hóf starfsemi 1996 og er eigandi verslunarmiðstöðvarinnar Smáralind. Dótturfélag þess er Smáralind ehf. kt. 860807-1320 sem er rekstrarfélag um sameign  og markaðsmál verslunarmiðstöðvarinnar.
  • Grípir ehf., kt. 590101-2140 var stofnað árið 2001 en var keypt í maí 2010 og er að fullu í eigu Regins Atvinnuhúsnæðis. 
    Starfsemi félagsins er hætt þar sem fasteign þess var seld í janúar 2011.
  • Reginn Í2 ehf., kt. 690910-1280 var stofnað árið 2010 og er að fullu í eigu Regins Íbúðarhúsnæðis ehf. Félagið hefur ekki hafið starfsemi.
  • Þróunarfélag BRB ehf., kt. 690910-1360 hóf starfsemi í júlí 2011 og Reginn þróunarfélag ehf. á 60% í félaginu. Eignir í félaginu eru lóðir á Kársnesi.
  • R-Höllin ehf., kt. 460509-0410 var stofnuð árið 2009 til að halda utan um rekstur í Egilshöll. Félagið átti aldrei fasteign og hætti rekstri í júlí 2010.

Reginn ehf.
Kt. 630109-1080
Hagasmára 1
201 Kópavogur
Sími 512 8900
reginn@reginn.is